Um Helga
F. í Reykjavík 9. júní 1967. For.: Úlfur Hjörvar (f. 22. apríl 1935, d. 9. nóv. 2008) rithöfundur og þýðandi og k. h. Helga Hjörvar (f. 2. júlí 1943) forstjóri Norðurbryggju í Kaupmannahöfn. K. (22. ágúst 1998) Þórhildur Elín Elínardóttir (f. 14. apríl 1967) upplýsingafulltrúi og grafískur hönnuður. For.: Þorvaldur Axelsson og k. h. Elín Skeggjadóttir. Dætur: Hildur (1991), Helena (2003), María (2005).
Stundaði nám í MH 1983-1986. Heimspekinám HÍ 1992-1994.
Framkvæmdastjóri Blindrafélagsins og Blindravinnustofunnar 1994-1998. Forseti borgarstjórnar Reykjavíkur 1999-2002. Í stjórn Norrænu blindrasamtakanna 1994-1998. Í stjórn Orkuveitu Reykjavíkur 1994-2002. Formaður Blindrafélagsins 1996-1998. Í stjórn Sjónverndarsjóðsins síðan 1996. Formaður félagsmálaráðs Reykjavíkur og stjórnkerfisnefndar Reykjavíkur 1998-2002. Í borgarráði Reykjavíkur 1998-2000 og 2001-2002. Stjórnarformaður hússjóðs Öryrkjabandalagsins 1998-2007. Formaður borgarmálaráðs Samfylkingarinnar 1999-2002. Í stjórn Landsvirkjunar 1999-2006. Í samgöngunefnd Reykjavíkur 2000-2002. Í stjórn Tæknigarðs 2000-2006, þar af formaður 2002-2006. Skólastjóri Stjórnmálaskóla Samfylkingarinnar síðan 2000. Í hafnarstjórn Reykjavíkur 2002-2006. Í stjórn Fasteignastofu Reykjavíkur 2003-2006. Í stjórn Blindrabókasafnsins síðan 2003.
Alþm. Reykv. n. síðan 2003 (Samf.). Fjárlaganefnd 2003-2007, félagsmálanefnd 2003-2005 og 2006-2007, iðnaðarnefnd 2005-2007 og 2009-, kjörbréfanefnd 2007-, sjávarútvegs- og landbúnaðarnefnd 2007-, umhverfisnefnd 2007- (form.). Íslandsdeild Norðurlandaráðs 2007-.