23/03/2012
Það er viðeigandi að í dag, á degi Norðurlandanna, er vorþing Norðurlandaráðs haldið í Reykjavík. Þema þingsins er norðurskautið og verður m.a. lögð fram tillaga um sameiginlega stefnu Norðurlanda í málefnum norðurslóða. Norrænu ríkin hafa öll sett fram stefnu um norðurslóðir þar sem er að finna sameiginlega sýn á mörgum sviðum en einnig ólíka sýn á öðrum. Norðurlandaráð vill beina þeim tilmælum til norrænu ríkisstjórnanna að þær sameinist um sameiginlega stefnu í málefnum norðurslóða svo vinna megi að sameiginlegum markmiðum. Í þessu sambandi má nefna sameiginlega norræna framtíðarsýn um umhverfismál og um lífskjör íbúa norðurslóða. Mikilvægt er að framþróunin á svæðinu verði á þann hátt að þar haldist í hendur mikilvægir hagsmunir íbúa, náttúru og nýtingar auðlinda norðurslóða.
19/03/2012
Í viðtalið við Viðskiptablaðið þann 15. mars sl. fór ég meðal annars yfir vandamál sem tengjast krónunni: „Ég hef líkt krónunni við Berlínarmúrinn. Þegar það er róstursamt á erlendum mörkuðum eins og verið hefur undanfarið, þá er skjólgott á bakvið múrinn og margir finna skjól í höftunum. En líkt og með Berlínarmúrinn þá koma höftin í veg fyrir frjálsa verslun og frjáls viðskipti. Við vitum að grundvöllurinn fyrir litlar þjóðir til að vera sjálfstæðar er verslunar- og viðskiptafrelsi.“ Viðtalið er birt hér í heilu lagi.
05/03/2012
Helgi Hjörvar kvartar yfir umræðu um skuldamál. Ýmist telji menn að hægt sé að gera allt fyrir alla án kostnaðar eða að ekkert sé hægt að gera. Hann vill innleysa skatttekjur á frjálsan viðbótarlífeyrissparnað, nýta 20 milljarða króna afslátt sem…
05/03/2012
Ég kallaði hér í Fréttablaðinu á mánudag eftir málefnalegri umræðu um raunhæfar aðgerðir í skuldamálum heimila. Ekki væri hægt að gera allt fyrir alla en töluvert fyrir marga og það þyrfti að ræða. Leiðarahöfundur Fbl. gerði því skóna hér í…
07/03/2011
Vegna umræðna um afdrif stjórnlagaþings, birti ég hér ræðu mína úr fyrri umræðu um þingsályktunartillögu um skipun stjórnlagaráðs. Eins og fram hefur komið eru skiptar skoðanir um ágæti þessarar tillögu, bæði innan þings og utan. Að mínu mati er það lykilatriði að Alþingi setji ekki það vonda fordæmi að löggilda óbeinlínis það sem dómarar Hæstaréttar hafa ógilt. Þess vegna styð ég ekki framkomna tillögu.
07/03/2011
Auðlind okkar allra, fiskurinn í sjónum, skilaði sjávarútveginum 45 milljarða gróða árið eftir hrun, 2009. Fyrir þann gríðarlega hagnað greiðir hann 3 milljarða til almennings í veiðigjald, eða einn milljarð til eigandans fyrir hverja fjórtán sem hann tekur í hagnað. Það er verri meðferð á almenningi en íslenska landsliðið mátti þola gegn Dönum í versta ósigri íslenskrar knattspyrnusögu. Til glöggvunar er hreinn hagnaður sjávarútvegs nær hálf milljón á hvert heimili.
12/11/2010
Á Norðurlandaráðsþingi í Reykjavík á morgun fjalla norrænu forsætisráðherrarnir um spurninguna “Grænn hagvöxtur – leiðin út úr kreppunni?” Málefnið snertir okkur öll, þar sem grænn hagvöxtur veitir okkur tækifæri til að hætta notkun jarðefnaeldsneytis og skapa ný störf í grænu hagkerfi. Norðurlöndin eru framarlega í notkun endurnýjanlegrar orku og þróun umhverfistækni. Hvernig tryggjum við að þau verði það einnig í framtíðinni?
15/06/2010
Alþingi afgreiðir nú endurbætt og vönduð úrræði fyrir verst settu skuldarana. Einar sér eru slíkar lausnir þó líkt og að bera sólarljós inn í gluggalaust hús, því hætt er við að án víðtækra almennra skuldaleiðréttinga bætist við ný vandamál jafn harðan og leysist úr hinum eldri.